Í rauðvíns glasi guðanna
syntum við saman,
þar til ég nennti ekki lengur að bursla
og lét mig fljóta innan um öldunar.

þú stakkst mig af inn í eilífðina
meðan hringyðja aðgerðaleysins gleypti mig
og nú snýst ég í öfuga hringi niðrí djúpið

háleitu hugsanirnar, draumarnir okkar
allt sem gat orðið verður að engu
og þar með talinn ég

en svo þegar ég er sokinn,
hitti ég þig í djúpinu?