Þú ert einn í húsi
með áttahundrað manns
enginn sér þig eða veit að þú ert til.

Rétt sem ef værir þú vofa
svífur þú með fram veggjum,
allir horfa í gegnum þig
og enginn veit að þú ert til

Í fjögur ár hefur þú setið
og starað ofan í bækur þínar,
horft út um gluggann og leynt tilvist þinni
svo enginn viti að þú sért til.

Þú átt enga vini
og þér líður aldrei vel
enda veit enginn að þú sért til.

Þó þú lesir allt sem þér er sagt að lesa,
vitir allt sem þú átt að vita
og náir öllum prófum
þá afrekarðu ekki neitt.

Því í fjögur ár hefur lesið
og enn veit enginn að þú sért til.