Drepum, drepum, dreifum þeim í sandinn,
djöflablóðið rennur út í höf.
Því á reiki' er hryðjuverkavandinn,
veltum þeim í stóra fjöldagröf.
Drottinn leiðir dómsstólinn minn,
drepinn verður síðasti heiðinginn.

Þei, þei! Þei, þei! Þarna liggja krakkar,
þrútin öll, úr munni vætlar blóð.
Gott er það, því greyin voru rakkar,
glasabörn úr dauðadæmdri þjóð.
Hryðjuverkamenn við Ódáðahraun,
hafa kannski efnavopn á laun.

Drepum, drepum, dreifum þeim í sandinn,
dauða sendum yfir Herðubreið.
Svarta konan er að brýna brandinn,
biðjum þess að verða á hennar leið.
Skýra hugsun skal ég gefa til
að skjóta Araba við Kiðagil.

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

Tilbrigði við „Á Sprengisandi“ eftir Grím Thomsen. Úr leikritinu „Þú veist hvernig þetta er“ sem Stúdentaleikhúsið sýnir í nóvember. Hentar vel til söngs.