draumar mínar berjast um, í örvæntingu,
eins og fiðrildi í kóngulóarvef
og komast ekki neitt

því bráðum skríður
ófrýnileg áttfætlan úr híbýli sínu,
safnar þeim saman,
vefur þeim inn í litlar púpur,
sprautar magasýru sinni
inn í fíngerða líkama þeirra
og rænir þá innyflunum

og brátt verða þeir
aðeins innantómir, afmyndaðir skuggar þess
sem ég eitt sinn óskaði mé