þú situr
í sakleysi þínu
á litlum kaffibar
með vinkonum þínum
og saman bölvið þið
þeim mannhundum
sem þrá ykkar ytri fegurð
í stað þeirrar innri

en þegar fagurgalinn
gefur þér gaum
og galar í heyra þér
sínum fögru ljóðum

þá farið þið saman heim til þín…

… þú vaknar næsta dag
skömmustuleg,
útriðin og ógeðsleg

og skáldið sem skaut að þér
sínum skrautlegu orðum

er horfið