Nú er allt aftur orðið bjart,
Líðan mín er fögur,
Orðin blómstra út um allt,
Ég er orðin mögur.

Maginn orðinn eftir mat,
Upfullur og sprunginn,
Ég er orðin eintómt gat,
Svo aftur er mikill þunginn.

Farin aftur út að teikna,
Fletti síðum út og inn,
Opnuð bókin til að reikna,
Forðum var hann vinur minn.

Eftir nokkur ár ég verð,
Aftur farin að ganga,
Um með þetta stóra sverð,
Farin að finna fanga.

Úti bíður mikla rokið,
Kuldinn bítur nefið,
Allt er flest í sjóinn fokið,
Hatturinn, húfan, kvefið.




Götuljósin dofna er nýr dagur rís.
Sólin bjarta, dansar með okkur.
Gamlir dagar verða að nýjum dögum.
Gleðin í fólki tekur völd í deginum.


Þó rigningin myndi dynja úti,
Fólk væri samt glatt.
Svæfi langt fram eftir degi.
Og hallaðist út af flatt.



Nokkur ljóð/vísur sem ég var að leika mér að búa til…þetta eru ekkert spes ljóð…en já :) njótið vel :P ;)


Það er rok og rigning,
Ragnarstöðum á.
Gífurleg, grínlaus signing,
Á Grískum dögum þá.

Goggi og Grjóni,
Gaman hafa þá.
Doddi er þessi dóni,
Sem dillir sér á stjá.