blái engillinn
horfir í gegnum glugga alheimsins
og baðar út vængjum
í hvert sinn sem hann sér
brotin andlit gleymskunnar
sprengjuvörpur gullæðisins
mannanámuverkamenn sem útvega fallbyssufóður
rauð tárin sem féllu
í blindri trú á harðstjóra falskra hugsjóna

blái engillinn
kveikir í síðustu rettunni
klárar síðustu sneiðina
síðasta sopann

'þetterekkitilneins'
tuldraði blái engillinn
og á meðan hann lokaði glugganum
og þurrkaði blámann úr andliti sínu
stækkaði kókflaskan á borðinu hans