Ég hef enga kosti,
framtíðina hefur þú skipulagt,
án míns samþykkis
geri ég hitt og þetta
mér mislíkar flest en
það skiptir ekki máli.
Ég hef ekkert sjálfstæði.
Eins og smákrakki hlýði ég,
þú ert stjórinn.

Mótþrói virkar ekki,
ég má ekki hafa trú,
engin trú a´sjálfri mér,
eina sem getur hjálpað mér,
er trúin á Guð en
mér er bannað að trúa,
trúa af öllu hjarta.
Eins og smákrakki hlýði ég,
þú ert stjórinn.

Get ekkert gert,
fylgi bara dagskránni,
draumar mínir á bak og burt,
þínar vontir, þínar væntingar,
í fyrsta sæti fara.
Líf mitt ónýtt,
ég er þinn þræll.
Eins og smákrakki hlýði ég,
þú ert stjórinn.