Ást…

…kemur á óvart
…er yndisleg
…er bros
…er silkimjúkur koss
…er stressuð
…er tortryggin
…er einsog algebra
…er eftirvænting
…er einsog að borða hrísgrjón með prjónum
…er bankareikningur með enga vaxtaskerðingu
…er kaldur fiðringur í maganum
…er einsog tungumálanám án orðabókar
…er einsog slóði sem er ekki merktur inn á kort
…er brothætt
…er erfitt að gleyma

Ástarsorg er…

…ljóð