Þetta er texti af lagi sem ég er búin að semja.
Væri gaman að fá álti..


Ef ég gæti bara eytt öllu því,
sem að ég hef gert á hlut þinn.
Ef ég gæti bara snúið aftur við,
og endurkallað draumaprinsinn.

Hunsað einmanaleikann,
grátbólginn, dapran, og smeykan.
Grætt í mig hamingjuhjarta,
framtíðardagana bjarta því að…

Viðlag:

Þú átt mig alla,
upp til fjalla,
dag og nótt.
Ég áfram kalla,
upp til fjalla,
svarið fljótt.

Hugur minn hann er uppfullur af þér,
hugsun sem vill áfram vera.
Þú sem eitt stóðst við hliðina á mér,
ert orðin þyngsl sem þarf að bera.

Ganga úr skugga´um að gleyma,
hafa engu að leyna.
Grátin augun þau sjá þig,
beint fyrir framan sig því að…

Viðlag:

Þú átt mig alla,
upp til fjalla,
dag og nótt.
Og ég áfram kalla,
upp til fjalla,
svarið fljótt.

Aukavers:

Sit hér ein að bíða,
á við eymd að stríða,
ekkert heyri frá þér nú.

Dagarnir þeir líða,
svo sárt að þurfa´að bíða,
verð að halda´í mína trú.

Viðlag*2
Eins manns rusl er annars manns fjársjóður…