Ferskeytlunnar feykistyrkur
finnst um allar jarðir hér
allur skarinn enda virkur
eins og okkur vera ber.

Betra er að bogna' en bresta
býðst mér nú að launa þér.
Enskan mun nú æra flesta
alla þá sem eru hér.

Finnum okkar fortíð bjarta
fegurðin úr henni skín
sjáum okkar framtíð svarta
segi ég við erum svín.