Fossarnir opnuðu munn sinn
og þú stóðst fyrir neðan
og beiðst þess
að álfadísirnar
tækju þig með sér
úr ríki rafeinda
——–róteinda
——–nifteinda
í dal ástar og töfra

en álfadísir lifa
í draumalandinu
og geta því ekki andað að sér
lofti sem er 20% súrefni

en þú sefur nú vært
meðal fiska sem narta í eyrun á þér
þeir eru raunverulegir
anda að sér 100% sjó
og búa til lítil fiskabörn úr þé