Ég fékk hina illu átu,
og þurfti að leysa þá gátu,
finna stað þar sem börn ei sátu,
því illum valda þau látum.

Ég þaut skjótt af stað,
og bíll minn rann í hlað.
Á fjarlægum kjúklingastað,
ég Tower Zinger um bað.

Borgarann byrjaði að naga,
ljúft rann niður í minn maga.
Þessa línu þarf að laga
og þannig endar þessi saga.