Ég sakna þín eins og gróður í þurrki þarfnast vökvunar
Ég sakna þín eins og fiskur á þurru landi þarf heimkynni sín
Ég sakna þín eins og ég sakna þín

Ég sakna þín en blöð mín eru fölnuð
Ég sakna þín en hreistur mitt er þornað

Ég sakna þín,
en þú kemur ekki lengu