“….og til okkar er mættur
Þorkell stjórnmálaspekúlant…”

Fólk sem er fífl,
býður öðrum fíflum í heimsókn
til þess eins að
kalla mig fífl.
Situr fólk GAPANDI
yfir snilligáfum
þessara manna,
haldandi ekki vatni
yfir því hvað spekúlantinn
er klár að fatta
að þegar hann situr við
míkrafóninn getur enginn
andmælt honum þannig
að það er sama hvað hann segir
það á enginn eftir að
pota í augað á honum til að
benda honum á að hann sé fullur af skít.

Ég veit hvað er að hjá mér,
ég þarf bara að stilla
útvarpsvekjarann minn aftur
á gömlu gufuna þar sem
ég þarf ekki að sitja
gapandi undir umræðum
um það hvað fólkið
í landinu sé heimskt.

Situr þú og hlærð
að sjálfum þér þegar
útvarpsmaðurinn segir
þér að þú sért fífl.


—————-
* hugleiðingar festar niður eftir morgunþátt tvíhöfða 05/17/00