tónleikar

englar heimsins fljúga um og spila á strengi hjarta okkar eftir þeirra eigin hentisemi
þeir eru ósnertanlegir og þú getur ekki ráðið við tónlist þá er þeir spila
þú verður bara að hlusta
sumir eru sjáanlegir en það eru þeir sem valda hjartasorgum
þeir spila á hjörtu okkar og skilja okkur svo eftir með tóninn í eyrunum
og við verðum að hlusta áfram
þú ert svoleiðis engill, þú spilar þungarokk með hjartað mitt og sparar ekki kraftana
þó þú vitir ekki af þessu, þá gerir þú það ósjálfrátt með því að vera til, vera hér
og ég hlusta

og ég hlusta áfram og hjarta mínu blæðir út af ofreynslu
það er kallað hjartaáfall
hjartasorg
eða ástarsorg

englar heimsins eru ósnertanlegir
og það ert þú líka
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.