Bláir mávar.

Eins og bláir mávar,
kom hún til mín svífandi.
Eins og bláir mávar,
hnitaði hún hringi um mig.
Og eins og bláir mávar,
settist hún hjá mér.

En eins og bláir mávar
sem setjast til að hvíla vængina,
fór hún jafnskjótt aftur
á vit ævintýranna,
eins og bláir mávar,
sem eru ekki til.

vamanos

Þetta er í anda hins svokallaða “absúrdisma”. Eða það finnst mér amk. :)