Flótti.

Hlauptu, hlauptu, flýðu.
Dómur, dauði bíður.
Með faðminn opinn
illa líður.
Farðu, farðu, flýðu.
Þín bíður ekkert
nema ótti.
Eina úrræðið
er flótti.

Anda, anda,
hjartað slær,
hraðar, hraðar
færist nær,
hliðið opið,
öskur læti.
Fara hraðar
á höltum fæti.

Ligg í polli,
dumbrauðs blóðs.
Ligg í polli,
horf'á ljós.
Næstum sloppinn,
frelsið mitt,
trúi ekki
hann hafi hitt.

Sækir á mig,
ótti, ótti.
Úti er þessi
mikli flótti.
En ég vil fara
ég vil flýja,
þangað sem er
einhver hlýja.

vamanos