Í augum hennar
er lítið ljós
og án þess væru
augu hennar trú.
En með því vantar augun
fyllingu kærleikans.

Hún sagðist elska mig
og ljósið dofnaði.
En fyrr en varði
sá hún mig ekki
með neinu öðru en ljósinu.

Og ljósið stækkaði
og stækkaði svo mikið
að augu hennar lýstu
upp heiminn.
Hið skrýtna var það
að enginn sá ljósið
nema ég.
—————————-
Í augum mínum
er ekkert ljós
bara hún og lítið blik.
Og mynd hennar
í augum mínum
hefur öfug áhrif
við ljósið.