Þetta ágiskun um hvað símon var að hugsa í bókinni LORD OF THE FLIES eftir William Golding. Þetta er eftir dauða hans.

Ég trúði á paradísar eyju
Og þar endaði ég
Ég trúði á náttúruna
Og hana fékk ég
Ég trúði á guð
Og hann hitti ég.
Við vorum krakkar
Saklaus, óspillt
En náttúran greip okkur
Knúði okkur
Tók stjórn yfir okkur
Óttinn í hugum okkar
Varð skrímsli
Og drungi færðist yfir paradís
Ég gekk um skóginn
Villtur frá samfélaginu
Villtur af slóð annara
Og ég hitti höfðingjann
Ég fann sannleikann
Og með hann í brjósti
Dó ég til forfeðranna
Til að vera og vita
Að sakleysið er ekki til.