“oooooooooohhhhhhhhh
aaaaaaaaaaaaaahhhhhhhhh
I don’t need no money
if I’ve got you – honey
you lighten up my world
ooooh baby
please be my girl…?”



með karlmannlegu urri
og tilheyrandi blóti og ragni
hneykslast ég agndofa
yfir laginu í útvarpinu…

kem svo heim
sest niður
og skrifa nákvæmlega sama texta

…reyni bara að láta hann hljóma ögn flóknari…
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.