Þú veist ei hve fegin ég er að hafa hitt þig
sumarkvöldið fræga í júlí, það gladdi mig
En ævintýrið stóð svo stutt
Ég varð eftir í sárum

Ég veit að okkur var ætlað að hittast
Fullkomið augnablik er við fórum að kyssast
Ég get ei lýst því hve glöð ég var
Allt var yndislegt

Þú einn hefur heillað mig, aðeins þú
Aðeins þú
Því þú lætur mig alltaf líða vel
Þú kannt á mig

Fólk horfði hissa er við gengum saman hönd í hönd
Rómantíkinni héldu alls engin bönd
Mér líður alltaf svo vel með þér
Þá get ég verið ég sjálf
Ég finn til, þess vegna er ég