Eins og gömul og gagnlaus hóra
sem glatað hefur trúnni
á tussunni sinni
hefur síra Guðbrandur Ólafsson Norðfjörð
glatað trúnni á guð

Hann lætur þó ekki af starfi
frekar en hin snauða vændiskona
nei, þvert á móti ríghalda þau bæði
þurfandi
í sitt þurra brauð

og þó sóknabörnum gleðikonunar
fækkar stórlega við pussumissinn
halda kúnnar í þessu ákveðna prestakalli
áfram að sækjast eftir
sinni reglulegu sálfriðarfullnægingu
þó þeir fái hana ekki