Varir þínar snertu varir mínar ólíkt öllum öðrum kossum.
Augu þín litu í augu mín ólíkt öllum öðrum.
Tunga þín snerti hörund mitt jafn mjúklega og fjöður sem fellur til jarðar.
Hugur þinn blés sápukúlur með fallegustu litum í huga mér.
Ég renndi tungunni yfir varir þínar
Og öll mín vit öskruðu nafn þitt.
Með kossum þínum stöðvaðist jörðin, stjörnublikið varð skýrara, hitin heitari og kuldinn kaldari.

Gleymt hefur þú mér, en aldrei mun ég gleyma þér.