litla stúlkan sem við sáum í fréttunum
þar sem hún lá sundurskotin í blóði sínu
í rósrauða kjólnum

hún átti sér nafn
hún átti sér líf
hún átti sér fjölskyldu
hún átti sér gleði
hún átti sér vini
hún átti sér drauma…

sem allt var tekið vegna mistaka eins manns
sem ætlaði sér að taka líf annars manns
sem átti sér nafn
sem átti sér líf
sem átti sér fjölskyldu
sem átti sér gleði
sem átti sér vini
sem átti sér drauma…
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.