opnaðu rifnu hjartaveggi þína
viltu bjóða mér þangað inn?

gæti lagað eitthvað
gæti þerrað tárin
gæti hulið sárin
með nokkrum heilsteyptum bútum
úr mínu eigin…

opnaðu rifna sálartetrið þitt
viltu bjóða mér þangað inn?

gæti lagað eitthvað
gæti þerrað tárin
gæti hulið sárin
með nokkrum góðum minningum
úr minni eigin…



gæfi þér hluta af hjarta mínu
gæfi þér hluta af sálu minni
til að fá aðgang að hjarta þínu
og fá að hlýja mér kaldur
þar inni…

gæfi þér hluta af huga mínum
gæfi þér hluta af sjálfum mér
til að fá aðgang að faðmi þínum
og fá að hlýja mér kaldur
hjá þér…

því allt þetta hjarta
og öll þessi sál
nýtast ekki hér…

öllu mínu hjarta
og allri minni sál
líður best hjá þér…
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.