Þú situr einn
og horfir dreyminn
ofan í bækur þínar
þegar næm augu hans
nema veikleika þína

og fyrr en varir
byrja egghvöss orð hans
að höggva
djúpa skurði
í viðkvæma sál þína