Svarti riddarinn þeysir eftir
gullsleginni gresjunni.
Íklæddur rauðri hempu,
slær hann um sig með silfruðu skeftinu.
Steingrá augun renna yfir
rauðbrúnan vegarslóðan,
á meðan græn laufblöð trjánna
slást við svarbláar lendar hans.

Þegar svefninn rofar, opnar hann augun og
starir inn í svarthvíta grámyglu hversdagsleikans