Sorg

Hvirfilvindur í brjósti mér,
sogar að sér kuldann,
nístir innstu hjartarætur,
ísflýsar þeytast brjóst mitt,
kringum hjartað sem kólnar,
og kólnar, og kólnar…