Ýr

Elsku besta hjartans Ýr,
þú varst mínar ær og kýr,
en mistökin þau voru mér dýr,
maður tímanum ekki til baka snýr.

Ég sýndi þér aldrei hvað í mér býr,
og brenndi að baki mér of margar brýr,
en nú hef ég ákveðið að skipta um gír,
og er orðinn maður nýr.

Ég er í dag sæll og hýr,
tíminn ekki lengur frá mér flýr,
þó er minn þróttur fremur rýr,
því hjarta mitt er vafið gaddavír.

JohnnyB


(Höfundur vill vekja athygli á því, fyrir þá sem ekki vissu, að hýr merkir einnig glaður, þetta er ekki bara notað yfir homma, það sama á við um gay á ensku)
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _