Ég sit hérna og hugsa með mér
að ég vil aðeins vera hjá þér
Þetta er yndislegt og fallegt kvöld
ég gæti verið svona í heila öld

Mér datt þetta alls ekki í hug
Áhyggjum mínum vísaði á bug
Ég get ekki lýst þeirri gleði
sem býr yfir mér, því ég er með þér

Ég vil ekki að kvöldið taki enda
ég vil bara vera hjá þér
En bráðum muntu annars staðar lenda
en vertu hjá mér, hjá mér

Ef þú kyssir mig hér í ljósamergð
þá ég hjá engum öðrum verð
Þú ert allt sem ég hef þráð
Hjarta mínu þú hefur náð

En á morgun verður allt breytt
og þú veist að mér þykir það leitt
Þess vegna vil ég vera hér í nótt
því þá verður mér rótt
Ég finn til, þess vegna er ég