Leikmyndin uppsett, aðgangseyrinn greiddur.
Unnendur dauðans sestir, ekkert sæti laust.
Tjaldið að tötrum, skildir leikaranna að flísum.
Eggvopn í augnstað, útkoman er óviss en aðlinum er sama,
svo lengi sem að sýningin færi þeim tímabundna skemmtun.
Og hver hló ekki þegar hallti maðurinn missti hendurnar?