Ég bíð með löngun
……….Í hjarta,
Eftir að veröldin
fái nýja ásjón .
í morgunroða nýs dags
Loks þegar myrkur og ryk
gærdagsins hefur endanlega
sleppt tökum sínum
og hverfur burt með hjálp
glænýrra sólargeisla.
….gleðst ég.
Kannski verður þessi dagur
………………….betri.