Ég horfi á hafið
fallegt og friðsælt
Vil vera annars staðar
til að fá hugarró

Margar hugsarnir innan í mér
þurfa að brjótast út
En hvernig, veit ég ekki
Þarf að finna leið

Fjarlægðin gerir fjöllin blá
Það er staðreynd
Ég sakna margs sem ég þoldi ei áður
Er full eftirsjár

Ég sé fjöll og firnindi
og finn fyrir löngun
til að komast á annan stað
og fá frí frá öllu þessu

Allt of miklar áhyggjur
sem ég losna ekki við
Ef bara að það væri til staður
þar sem enginn gæti truflað mig
Ég finn til, þess vegna er ég