Þó í litlum kassa róti
fullt finn ég af dóti
þarna er slitinn trúður
og fimm snjáðar brúður

Þarna er peningagrís
og tindátaflís
alls kyns legókubbar
og sætir bangsalubbar

Hér er gamalt Lúdóspil
já, margt er hér í kassa til
hvar er Lúdóspjaldið
hér er playmótjaldið

Undir rúmi eru Andrésblöðin
heil serían og röðin
og Disneyvídeóspólur
sippubönd og rólur

Komum út að vega salt
því nú er ekki lengur kalt
förum líka að róla
og hoppa um hæðir og hóla