Skapandi hendur hugsana minna
hafa mótað lítinn fugl
úr draumunum sem ég hélt að aldrei yrðu meir

og skreytu hann með skraulegum orðum.

Gamansemi gáfna minna
gerði honum stél
úr fjöðrunum sem ég sleit forðum
af fögrum páfuglum paradísar

afsprengi eymdarinnar
og augnaráð hinar glóeygðu gyðju
steyptu klær hans
úr hinu sterkasta stáli

leifar horfnar ástar
gáfu honum söngrödd
liðina tíma og lituð hana með tónafljóði
hina töfrandi tára.

Sem augnastein
fékk hann glitrandi demanta
göfugra minninga

og gylltur goggur hans
varð gimsteinn
þess sem aldrei getur orðið

fegurð hans
ólýsanleg,
óumdeilanleg

en hann getur ekki flogið
því hann fékk enga vængi
og enn hefur enginn annar en ég
séð þennan fegursta fugl framtíðarinar.