Sælir ljóðaunnendur!

Nú hefur Malbik - vinnuflokkur ljóð.is tekið til starfa. Við, flokksmeðlimir, ætlum að reyna okkar besta til að gera ljóðið svolítið meira áberandi í sumar með ýmis konar uppákomum.

Uppákomurnar verða fjölbreytilegar í stærð og gerð, það verður hefðbundinn ljóðaupplestur í bland við óvenjulegri atburði. Við munum setja fréttir og tilkynningar um væntanlega viðburði á heimasíðu okkar http://malbik.ljod.is

Öll hjálp er vel þegin, hvort sem eru sjálfboðaliðar til að lesa upp eigin ljóð eða annarra, hjálp við skipulagsvinnu eða bara hvers kyns ábendingar og hugmyndir (t.d. um athyglisverð skáld).

Við erum þrjú í þessum hóp og þar af 2 sem stunda þessa síðu talsvert, ég (Hildur) og elDoro. Ef þið viljið hafa samband þá getið þið annað hvort notað huga eða sent tölvupóst á info@ljod.is

Sumarkveðja,
Malbik