Í blómhnappi rósar
er fólgið fyrirheit
um fegurð lífsins
á gullnu augnabliki
þér birtist þar Guð
í blómsins mynd
sem brosir þér mót
í vegarins ryki.