Hámenntaður haus situr niðurlútur á Laugarveginum
flaggar verðmiða:
“Mun vinna fyrir jakkaföt og miða í óperuna”

nýburstaðir skór
hvít skyrta
sparibrosið

eyðir fyrsta vinnudeginum í að stilla stólinn
íslandsmeistari í kurteisi heilsar nýjum vinnufélugum

eyðir óþægilegri þögninni með hnittnum brandara
fylgist með pólitík til að gera sig ekki að fífli
fellur strax í kramið

Leigður líkaminn staulast heim eftir erfiðan vinnudag
götuljósin úti þakka honum fyrir að borga sig
kalt gler sjónvarpsins kyssir hann góða nótt
“True words are never spoken”