Hvað ég mun gera fyrir þig

Þerra skal ég tár þín
Strjúka þér um kollinn
Reima fyrir þig skónna
Leiða þig yfir götuna
Lyfta þér á háhest
Hræða burtu drauga þína
Vera hjá þér þegar þú þarfnast mín
Segja þér sögur af álfum og tröllum
Leika við þig
Hlægja með þér
Syngja með þér hástöfum alla söngva
Vera þar sem þú þarfnast mín
Elska þig

—–

Svolítið sem ég samdi eftir að hafa eignast lítinn systurson sem er já eitt það alfallegasta barn sem ég hef séð á mynd (er sko í öðru landi en íslandi :P).

kv. Taran *stoltasamanneskjaíausturríki*