Held ég elski þig... (Athygli skal vakin á því að þetta er í fyrsta skipti í langan tíma sem að höfundur leyfir sér að yrka í óbundnu máli)

Held að ég elski þig…

Ég horfi oft á þig úr fjarska,
en þori þig ekki að nálgast.
Fegurð þín vex mér í augum.

Þú ert ein sú fallegasta vera,
sem ég hef augum litið,
fegurð þinni kann ég vart að lýsa.

Liðað hár þitt er sem silki
og augu þín glitra,
líkt og á himninum stjörnur tvær.

Bros þitt er með afbrigðum fagurt,
það færir heiminum hlýju,
að minnsta kosti það yljar mér.

Ég veit ekki hvort ég ætti þér þetta ljóð að sýna,
ég er hræddur við neitun, hræddur við höfnun,
en ______, ég héld ég elski þig.

JohnnyB

(af tillitssemi við aðstandendur hafa öll nöfn verið máð útúr ljóðinu)
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _