Eitt sinn útí kulda sat
lítil kisa á steini
Horfði inn um músargat
því þar lá ein í leyni.

Kisa úr kulda næstum dó
ekki fékk hún bita
ekki er saga búin þó
viltu meira vita????

Kisa litla sat og beið
kuldan reyndi að þola
kisu litlu mikið sveið
undan kuldabola

Kisa var að frjósa í hel
Var þetta hinsti staður?
Það vildu nú svo vel
að labbandi kom maður

Nú er kisa á betri stað
Hún byrjaði allt að nýju
Hún fer reglulega í bað
og lepur mjólk í hlýju