Mig langar ekki að sofna
því þá þarf ég að vakna
og þegar ég vakna
þá þarf ég að vinna.

Svo ég vaki um stund
og velti fyrir mér
hvort þetta verði lífið:

Sofna við sjónvarpið,
vakna við símann,
keyra í verksmiðjunna,
stimbla mig inn
og stimbla mig út,
horfa á sjónvarpið
og sofna þar einn
enn á ný.
Bíða eftir helginni,
fara á pubinn,
draga heim heitan kvennmannsbelg,
sofna eftir kynlífið,
vakna,
hringja á leigubíll,
send´ana burt,
horfa á sjónvarpið,
og sofna einn
enn á ný