Ó hve ljúft það var
að stinga sig á eitruðum
kaktus þínum,
finna nálarnar smjúga
inn í volgt holdið,
finna þær snúast
og hristast af æsingi
yfir nýju fórnarlambi,
og án þess að hika
opnaði ég faðminn,
gaf þér allt
sem hafði ég að gefa
og framdi tilfinningalegt sjálfsmorð
fyrir stundargaman með þér.