þú otar fingri
og maðurinn er dáinn

þú otar fingri
og húsin eru rifin niður

þú otar fingri
og múr milli manna er byggður

þú otar fingri
og barnið sér ekki meira

þú otar fingri
og öll þjóðin lifir í ótta



af hverju otar þú
ekki þínum fingri
í þá átt sem hann á heima?

helvítis fíflið þitt.


Vinsamlegast,

Daníel Páll Jónasson,
Reykjavík, Íslandi.


***Innblásturinn að þessu ljóði er fenginn frá laginu “Hooker with a penis” með hljómsveitinni Tool. Dylst líklega engum að ég hatast við þennan mann…***
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.