.kærleikurinn breiðir yfir alla bresti
.Úr hyldýpum
.hjarta míns,
.sem ég þekki ekki,
.kemur eitthvað sem ég vil ekki,
.sem ég á ekki.

.Burt viðbjóður.
.Þú horfir á mig, ráðvilltur.
.Hvað hef ég gefið?
.Hvað get ég gefið?
.Ekkert.

.Kúgast af sjálfri mér,
.langar að flýja
.en er föst.
.Hræðist ekki dauðan,
.en óska hans stundum.

.Óhreinindin
.festast við mig.
.Þakin ógeði.
.Langar að þvo mér
.en hef ekki máttinn.

.Utan um mig kominn hjúpur
.ofan á hinn.
.Ný ég, sem ég er ekki.
.Ég er hulin
.sjálfri mér og öðrum.

.Vil ekkert.
.Nenni ekki að breytast
.en hata mig samt.
.Aðgerðaleysið pínir mig
.en ég á það skilið.

.Vonleysið algjört.
.Algjör uppgjöf.
.Sjálfshatur.
.Hjartað rotið.
.Heiladauði.

Fyrirgefið ef ég er farin að senda með of stuttu millibili, næsta ljóð sem ég sendi mun vera eftir langan tíma, lofa því. En athugasemdir eru mjög vel þegnar.