Elsku besti vinur

Ég kemst ekki að því í orði,
né veit um hvað þetta snýst.
Minn allur orðaforði
fær ekki þessu lýst.

Þú ert bara þarna,
og ég er bara hér.
Sko, hérna, veistu, ég…
Er bara ekki hrifin af þér!

Því lengur sem ég skrifa
skýrist betur fyrir mér
ég vil ekki með þér lifa,
ég vil lifa með sjálfri mér.

Þú vilt eignast mig
ég kæri mig ekki um slíka hlekki.
Það er ekki eins og ég þekki þig
og þú þekkir mig svo sannarlega ekki.

Ást mín leitar annan veg.
Já, í þveröfuga átt.
Það varst ekki þú, það var ég.
Hættu að elta mig, þú átt bágt.


Ég vona að þið höfðuð eitthvað gaman af þessu. Ég gerði þetta fyrir þrem árum… dáldið barnalegt ég veit en ég vona að þið sjáið húmorinn :) Það væri frábært að fá athugasemdir.