Strákurinn
sem fann ástina
hjá stelpu
úr vesturbænum

já sá hinn sami
og festi kaup
á íbúð
með sömu stelpu

og giftist henni síðar

hann týndi ástinni
nokkrum árum seinna
á þorrablóti
vestur í landi

er enn að leita