Hérna kemur aðeins endurbætt útgáfa af ljóði sem ég sendi inn um daginn og ætla að taka leiðbeiningar tmars til greina.

Daðursleg brúnaljós
rauðar varir
vættar í blóði
hins auðmjúka
leitandi hendur…


Grá morgunskíman
Maður sem vaknar einn
í tómu húsi
og fær sér fyrsta kaffibolla dagsins
í hljóði