Sársauki,
ég veit
þú finnur fyrir
sársauka.

Dettur
oní djúpa holu,
hverfur
í myrkrinu.

Blóm þurfa birtu!

Hvernig
fæ ég þig út
í sólina?

Get ekki bara
beðið,
horft á þig
visna…

Hvað væri lífið
án blóma?

Ekki gefast upp!

Teigðu þig
í sólina,
leyfðu mér
að hjálpa þér

Vil ekki missa þig,
þarfnast þín!


Skrifað í apríl 2002, ég varð aldrei fullkomlega ánægð með það hjá mér, en samt finnst mér vænt um það. Þætti vænt um að fá álit eða leiðbeiningar, takk, Tóta